Forsíða Skipulagsmál Skipulagsbreytingar

Aðalskipulag Reykjanesbæjar 1995-2015

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

var staðfest af ráðherra 28. mars 1996. Fyrirhuguð framkvæmd er ekki í samræmi við núgildandi aðalskipulag og þarf að breyta því áður en framkvæmdaleyfi er veitt. Fyrirhugaðar línur fara yfir svæði sem í gildandi aðalskipulagi er óskilgreint svæði þar sem aðalskipulagið nær einungis yfir þéttbýli. Innan þéttbýlis fara strengir yfir svæði sem skilgreint er sem stofnanasvæði, opin svæði til sérstakra nota og óbyggð svæði.

Aðalskipulag Reykjanesbæjar 2006-2021 er í vinnslu og er stefnt að því að það komi út í lok árs 2008. Þar er gert ráð fyrir nýjum háspennulínum þ.e. Suðurnesjalínu 2 og Kolviðarhólslínu 2, Reykjaneslínum 1 og 2, Helguvíkurlínum 1 og 2 og nýju tengivirki í Njarðvíkurheiði. Suðurnesjalína 1 verður rifin frá sveitarfélagsmörkum að tengivirki á Njarðvíkurheiði. Fitjalína 1 verður lögð í jörð frá Njarðvíkurheiði að Fitjum og Suðurnesjalína 1 fær nafnið Fitjalína 2 milli tengivirkja í Njarðvíkurheiði og Fitjum.

Unnið er að endurskoðun aðalskipulags Reykjanesbæjar sem fela í sér fyrirhugaðar breytingar á raflínum innan sveitarfélagsins sem og umhverfismati í samræmi við lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.