var staðfest af ráðherra 16. nóvember 1994. Innan lögsögu sveitarfélagsins Voga liggur Suðurnesjalína 1 frá sveitarfélagamörkum. Í lok árs 2008 er gert ráð fyrir að aðalskipulag Vatnsleysustrandarhrepps verði fellt úr gildi og við taki aðalskipulag Voga 2007-2027. Færa þarf nýjar línur, Suðurnesjalínu 2 og Kolviðarhólslínu 2 inn á endurskoðað aðalskipulag og taka Suðurnesjalína 1 af skipulagi þar sem hún verður rifin. Samkvæmt endurskoðuðu aðalskipulagi fara línurnar um svæði sem skilgreind eru sem vatnsverndarsvæði (fjarsvæði), hverfisverndarsvæði, náttúruverndarsvæði (friðlýst svæði), efnistökusvæði og óbyggð svæði.
Tillaga að nýju aðalskipulagi Sveitarfélagsins Voga 2008-2028, ásamt umhverfisskýrslu skv. lögum nr. 105/2006 sem innifelur í sér fyrirhugaðar framkvæmdir er í auglýsingu frá og með 15. maí 2009 til og með 19. júní 2009 með athugasemdafrest til 3. júlí.
- Sjá nánar: Aðalskipulag Sveitarfélagsins Voga







Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi