var staðfest af ráðherra 18. maí 2007. Innan lögsögu Hafnarfjarðar liggja m.a. Hamraneslínur 1 og 2 (220 kV), Búrfellslína 3B (220 kV) og Ísallínur 1 og 2 (220 kV). Breyting á aðalskipulagi felst í því að Búrfellslína 3B fær nafnið Kolviðarhólslína 2. Samhliða henni frá Sandskeiði verða lagðar tvær 400 kV línur að Hrauntungum, Búrfellslína 3 og Sandskeiðslína 1. Kolviðarhólslína 2 liggur svo áfram að Njarðvíkurheiði. Byggt verður nýtt tengivirki í Hrauntungum. Þaðan verður lögð ný lína, Suðurnesjalína 2 (220 kV), samhliða Kolviðarhólslínu 2 að Njarðvíkurheiði. Frá Hrauntungum verða lagðar Ísallínur 3 og 4 að álveri Ísal við Straumsvík. Tveir jarðstrengir verða lagðir milli tengivirkjanna í Hrauntungum og Hamranesi. Enn fremur verða Hamraneslínur 1 og 2 og Suðurnesjalína 1 rifnar. Fyrirhuguð framkvæmd er ekki í samræmi við núgildandi aðalskipulag Hafnarfjarðar 2005-2025.
Færa þarf nýjar línur inn á skipulagið en þær fara yfir svæði sem skilgreint er á aðalskipulagi sem óbyggð svæði, vatnsverndarsvæði, opið svæði til sérstakra nota og hverfisverndarsvæði.
Unnið er að breytingu á aðalskipulaginu í samræmi við fyrirhugaðar breytingar á raflínum sem og umhverfismati breytinganna í samræmi við lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.
- Sjá einnig: Aðalskipulag Hafnarfjarðar







Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi