var staðfest af umhverfisráðherra 17. nóvember 1997. Innan lögsögu Garðabæjar liggja m.a. Hamraneslínur 1 og 2 (220 kV) og Búrfellslína 3B (220 kV). Fyrir liggur tillaga að endurskoðun á aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016 sem hefur verið auglýst en á eftir að staðfesta. Breyting á aðalskipulagi felst því í að Búrfellslína 3B, sem liggur suðaustan Húsfells, fær nafnið Kolviðarhólslína 2. Lagðar verða tvær nýjar 400 kV línur (Búrfellslína 3 og Sandskeiðslína 1) samsíða Kolviðarhólslínu 2. Hamraneslínur 1 og 2 milli Geitháls og Hamraness verða fjarlægðar.
Fyrirhuguð framkvæmd er ekki í samræmi við aðalskipulag Garðabæjar 1995-2015 og þarf að breyta því áður en framkvæmdaleyfi er veitt. Færa þarf nýjar línur inn á aðalskipulag en þær fara yfir svæði sem skilgreind eru sem óbyggð svæði, friðlýst svæði Bláfjallafólksvangs og Reykjanesfólkvangs sem og vatnverndarsvæði, brunnsvæði og grannsvæði.
Unnið er að breytingu á aðalskipulaginu í samræmi við fyrirhugaðar breytingar á raflínum sem og umhverfismati breytinganna í samræmi við lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana.
- Sjá nánar: Aðalskipulag Garðabæjar







Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi