Forsíða Skipulagsmál Skipulagsbreytingar

Aðalskipulag Mosfellsbæjar 2002-2024

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

var staðfest af umhverfisráðherra 8. júlí 2003. Innan marka Mosfellsbæjar liggur m.a. Búrfellslína 2 (220 kV) , Búrfellslína 3A (400 kV) og 3B (220 kV), Sogslína 2 (132 kV) og Sogslína 3 (220 kV).Breytingar felast í því að gert er ráð fyrir að Sogslína 2 verði rifin og ný lína, Kolviðarhólslína 2, verði byggð í línustæði hennar frá Kolviðarhóli að Sandskeiði. Gert er ráð fyrir að nýtt tengivirki verði reist á Sandskeiði. Frá Sandskeiði að Hafnarfirði liggur Búrfellslína 3B, sem mun breyta um nafn og kallast Kolviðarhólslína 2. Lagðar verða tvær nýjar 400 kV línur, Búrfellslína 3 og Sandskeiðslína 1, samsíða Kolviðarhólslínu 2.

Færa þarf nýjar línur inn á aðalskipulag, en línurnar liggja yfir svæði sem skilgreint er á gildandi aðalskipulagi sem opin óbyggð svæði og vatnsverndarsvæði I, grannsvæði, og vatnsverndarsvæði II, fjarsvæði.

Tillaga að breyttu aðalskipulagi Mosfellsbæjar 2002-2014, ásamt umhverfisskýrslu skv. lögum nr. 105/2006 sem innifelur í sér fyrirhugaðar framkvæmdir er í auglýsingu frá 14. maí 2009 til og með 25. júní 2009.