Forsíða Skipulagsmál Skipulagsbreytingar

Aðalskipulag Kópavogs 2000-2012

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

var staðfest af umhverfisráðherra 23. apríl 2002. Innan marka Kópavogs liggja m. a. Búrfellslína 3A (400 kV) og 3B (220 kV) og Sogslína 2 (132 kV). Breytingar á aðalskipulagi Kópavogs felast í því að austan Lyklafells er gert ráð fyrir að Sogslína 2 verði rifin og ný lína, Kolviðarhólslína 2, verði byggð í línustæði hennar. Á sama svæði verður Kolviðarhólslína 1 (220 kV) endurbyggð með meiri flutningsgetu og Búrfellslína 3 (400 kV) verður óbreytt. Hamraneslínur 1 og 2 verða fjarlægðar. Við Sandskeið og austan Húsfells liggur Búrfellslína 3B, sem mun breyta um nafn og kallast Kolviðarhólslína 2, auk þess sem línan verður endurbyggð með meiri flutningsgetu. Lagðar verða tvær nýjar 400 kV línur samsíða Kolviðarhólslínu 2, Búrfellslína 3 og Sandskeiðslína 1. Fyrirhuguð framkvæmd er ekki í samræmi við aðalskipulag Kópavogs 2000-2012 og þarf að breyta því áður en framkvæmdaleyfi er veitt. Færa þarf nýjar línur inn á aðalskipulag en þær fara yfir svæði sem skilgreind eru sem óbyggð svæði sem og friðlýst svæði Bláfjallafólkvangs samkvæmt gildandi aðalskipulagi.

Innan afréttar ofan Lækjarbotna liggja Kolviðarhólslína 2 og Búrfellslína 3 um land þar sem skipulagi hefur verið frestað. Á þessu svæði er ágreiningur um lögsögu og lögsögumörk Kópavogsbæjar, Seltjarnarness, Álftaness og Garðabæjar.

Tillaga að breyttu aðalskipulagi Kópavogs 2000-2012, ásamt umhverfisskýrslu skv. lögum nr. 105/2006 sem innifelur í sér fyrirhugaðar framkvæmdir er í auglýsingu frá 26. maí 2009 til 23. júní 2009 með athugasemdafrest til 7. júlí 2009