var staðfest af umhverfisráðherra þann 4. janúar 2005. Gerð var breyting á aðalskipulagi Ölfuss sem var auglýst í 21. mars - 18 apríl 2008 og staðfest 18. desember 2008. Breytingar á aðalskipulagi fólust í því að gert er ráð fyrir nýjum línum og tengivirki. Gert er ráð fyrir að Hverahlíðarlínur 1-2 verði lagðar sem jarðstrengir (220 kV) að nýju tengivirki á Hellisheiði. Frá nýju tengivirki að tengivirki við Kolviðarhól mun Búrfellslína 2 fá nafnið Hellisheiðarlína 1 og samsíða henni verður byggð ný 220 kV lína, Hellisheiðarlína 2. Frá Kolviðarhóli er gert ráð fyrir nýrri línu, Kolviðarhólslínu 2 en þar eru fyrir Kolviðarhólslína 1 og Búrfellslína 3. Jafnframt er nú gert ráð fyrir því á gildandi skipulagi að Sogslína 2 verði fjarlægð.
- Sjá einnig: Aðalskipulag Sveitarfélagsins Ölfuss







Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi