Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins
var staðfest þann 20. desember 2002 af umhverfisráðherra. Samkvæmt því er stefnt að því að háspennulínum verði ekki fjölgað og frekar horft til þess að leggja háspennustrengi í jörð eða auka flutningsgetu núverandi háspennulína með hærri spennu. Í fylgiriti 5 er fjallað um orku. Þar segir að orkunýting og tilheyrandi umhverfisáhrif vegna mannvirkjagerðar haldist í lágmarki innan þeirra marka sem raunhæft er af tæknilegum og fjárhagslegum ástæðum. Það sama gildir um nýtingu og rekstur mannvirkja og bygginga.