Forsíða Verkefnið Nær til 12 sveitarfélaga

Nær til 12 sveitarfélaga

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Tillagan að endurnýjuðu flutningskerfi raforku á Suðvesturlandi, sem kynnt er til sögu í mati á umhverfisáhrifum, varð í stórum dráttum til í samráðsferli Landsnets, sveitarfélaga og fleiri aðila sem hagsmuna eiga að gæta. Hún er því sett fram að vandlega athuguðu máli og í ferlinu hefur margt breyst í veigamiklum atriðum frá upphaflegum áformum um línulagnir á svæðinu.

Verkefnið tekur til meginflutningskerfisins frá Hellisheiði um Hafnarfjörð suður á Njarðvíkurheiði og tengingar virkjana og orkunotenda við það.

sveitarfkortHáspennulínurnar munu liggja um 12 sveitarfélög á svæðinu:

Sveitarfélagið Ölfus Mosfellsbæ
Reykjavíkurborg Seltjarnarnesbæ
Kópavogsbæ Garðabæ
Sveitarfélagið Álftanes Hafnarfjarðarbæ
Sveitarfélagið Voga Reykjanesbæ
Grindavíkurbæ Sveitarfélagið Garð


Verkefnið varðar að auki alls um 150 landeigendur, bæði einstaklinga, félög og opinbera aðila.