Loftlínur og möstur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Fyrirhugaðar háspennulínur verða trúlega svipaðar þeim sem fyrir eru á svæðinu, það er stöguð stálgrindamöstur, bæði fyrir 400 og 220 kílóvolta línur.


mastur_1

Möstur fyrir 400 kV háspennulínur. Vinstra megin er stagað V-mastur og til hægri er stagað M-mastur.

mastur_2

Möstur fyrir 220 kV háspennulínur. Til vinstri er stagað M-mastur úr stálgrind og til hægri stagað stálröramastur af gerð M.

Skýringar á hugtökum

Leiðari: Þrír leiðarar eru á hverri línu (þrír fasar). Þeir eru gerðir úr efni sem leiðir vel rafmagn. Í dag eru álblöndur oftast notaðar í leiðarana en áður fyrr voru koparvírar einng notaðir. Algengasta þvermál leiðara á 220-400 kV línum á Íslandi er 36-39 m. Á 400 kV spennu er notast við tvo eða fleiri víra í hverju leiðarahneppi.

Einangri: Einangrar eru notaðir til einangrunar milli spennuhafandi hluta og jarðtengdra hluta Einangrar eru úr efni sem leiðir illa rafmagn, oftast úr gleri, postulíni eða polymer. Lengd einangra eykst með hærri spennu.

Jarðvír: Jarðvírar skýla leiðurum fyrir eldingum og verja með því endabúnað í spennistöð og leiða eldingarnar um burðarvirki til jarðar. Þar sem eldingar eru fátíðar er stundum unnt að sleppa jarðvír á möstrum nema í næsta nágrenni (1,5-2 km) við spennistöðvar.

Jarðskaut: Jarðskaut eru til að jarðtengja möstur og tryggja útleysingu línanna við bilanir. Þá tryggja jarðskautin persónuöryggi umhverfis möstrin.

Hæð mastra: Í stöðlum er gerð krafa um lágmarkshæð leiðara frá jörðu. Þessi lágmarkshæð eykst með hækkandi spennu. Það er því í raun andrúmsloftið sem einangrar rafmagnið frá jörðu. Hæð leiðara er ákvörðuð með hliðsjón af sigi við hæsta rekstrarhitastig og/eða þegar ísing er á leiðurum.

Fjarlægð milli mastra: Fjarlægð milli mastra ákvarðast af kröfum um hæð leiðara yfir jörðu og þoli leiðara og mastra gagnvart álagi, einkum vindi og ísingu.

Burðarvirki mastra: Einstakir hlutar af burðarvirki stagaðra mastra eru gjarnan nefndir: brú, leggir, jarðvírseyra, stög og undirstaða. Burðarvirki mastra eru gjarnan úr stáli eða timbri, stál er yfirleitt notað ef spennan er 220 kV eða hærri.

Burðarmastur: Burðarmöstur halda leiðurum uppi og taka á móti hliðarálagi frá vindi. Burðarmöstrum er ekki ætlað að halda á móti kröftum í línustefnu nema til að hindra keðjuverkandi hrun mastra.

Fastmastur: Afspennt möstur halda leiðurum uppi auk þess sem þau hindra færslu leiðara í línustefnu. Fjarlægð milli afspenntra mastra er oft 3-10 km.