Hið endurnýjaða meginflutningskerfi raforku á Suðvesturlandi mun hér eftir sem hingað til byggjast á loftlínum en á fáeinum stöðum er gert ráð fyrir jarðstrengjum til tenginga við stórnotendur. Þannig er dregið úr umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Jarðstrengir koma ekki til greina í meginflutningskerfi raforku hérlendis en koma þó til álita á stöku stöðum, í línum eða línuköflum með minni flutningsgetu sem eru ekki hluti meginflutninganetsins og við tengingar einstakra notenda við kerfið.
Í verkefninu sem hér um ræðir, Suðvesturlínum, verða jarðstengir lagðir
- frá Hverahlíðarvirkjun að tengivirki á Hellisheiði. Jafnframt verður Sogslína 2 rifin og fjarlægð.
- frá Hrauntungum að Hamranesi. Jafnframt verða Hamraneslínur rifnar frá Geithálsi að Hamranesi í Hafnarfirði.
- frá Fitjum að Helguvík vegna orkufreks iðnaðar þar.
- að væntanlegum netþjónabúum í Reykjanesbæ og Sandgerði.

Dæmigerður frágangur 220 kílóvolta jarðstrengs með einum leiðara í fasa.







Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi