Hið endurnýjaða meginflutningskerfi raforku á Suðvesturlandi mun hér eftir sem hingað til byggjast á loftlínum en á nokkrum stöðum er gert ráð fyrir jarðstrengjum til tenginga – og þannig dregið úr umhverfisáhrifum framkvæmdanna.
- Í heildina er um að ræða nýbyggingu á u.þ.b.152 km af loftlínum og endurnýjun á um 19 km af línum meginflutnignskerfisins.
- Nýjar tengingar orkunotenda og virkjana við meginflutningskerfið, alls 35 km af loftlínum og 54 km af háspennustrengjum í jörðu.
- Núverandi háspennulínur rifnar niður og fjarlægðar,alls 97 km af loftlínum.
- Ný tengivirki rísa á Hellisheiði, við Sandskeið, við Hrauntungur sunnan Hafnarfjarðar og á Njarðvíkurheiði.
- Tengivirkið við Rauðamel verður fjarlægt.
Yfirlitskort og myndir yfir fyrirhugaðar framkvæmdir
Smelltu á myndina til að skoða myndasýninguna.







Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi