Forsíða Verkefnið Forsendur

Forsendur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
sudurnesjalina1
Suðurnesjalína 1
reykjanesvirkjun
Reykjanesvirkjun

Endurnýjun raforkuflutningskerfisins er forsenda uppbyggingar af ýmsu tagi í atvinnulífi landshlutans, þar á meðal aukinna umsvifa í orkufrekri atvinnustarfsemi, framleiðslu- og hátækniiðnaði. Sveitarfélögin vilja stuðla að því að styrkja framleiðslustarfsemi, nýsköpun og atvinnulífið yfirleitt til að fjölga störfum og auka umsvif í samfélaginu.

Framkvæmdir eru hafnar við álver Norðuráls í Helguvík og unnið er að framleiðsluaukningu hjá Rio Tinto Alcan í Straumsvík. Ákvarðanir liggja fyrir um netþjónabú á Keflavíkurflugvelli og áform eru um slíka starfsemi í Sandgerði og Hafnarfirði. Þá er mati á umhverfisáhrifum kísilmálmverksmiðju í Helguvík lokið. Öll þessi verkefni skapa fjölda starfa á svæðinu og skila tekjum inn í samfélagið.

Aukið öryggi
Brýna nauðsyn ber til að stækka og endurnýja flutningskerfi raforku á þessu landssvæði svo tryggja megi fólki og fyrirtækjum örugga raforku. Ef til dæmis Suðurnesjalína 1 bilar eða er tekin tímabundið úr rekstri vegna viðhalds er hætta á rafmagnstruflunum og jafnvel straumleysi á Suðurnesjum. Hitaveita Suðurnesja getur þá heldur ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart orkukaupendum utan svæðisins. Endurnýjun flutningskerfisins eykur þannig öryggi raforkunotendanna sjálfra, afhendingaröryggi raforkuseljenda gagnvart viðskiptavinum sínum og getu til aukins orkuflutnings til framtíðar.

Aukin raforkuframleiðsla
Endurnýjun raforkukerfisins er forsenda fyrir aukinni orkuöflun á Suðvesturlandi. Þannig undirbýr Hitaveita Suðurnesja stækkun Reykjanesvirkjunar ásamt því að skapa nauðsynleg skilyrði fyrir öðrum virkjunarkostum á Reykjanesskaga í framtíðinni. Orkuveita Reykjavíkur vinnur að stækkun Hellisheiðarvirkjunar og undirbýr nýja jarðgufuvirkjun við Hverahlíð.

 

Núverandi flutningskerfi og fyrirhuguð iðnaðarsvæði
Núverandi flutningskerfi og fyrirhuguð iðnaðarsvæði