Landsnet hefur markað sér sérstaka umhverfisstefnu vegna nýframkvæmda til að stuðla að því að umhverfisröskun á byggingartíma verði í lágmarki og frágangur við verklok til fyrirmyndar.
Til þess að ná þessu fram hefur Landsnet sett sér eftirfarandi markmið fyrir nýframkvæmdir á vegum fyrirtækisins:
- Ekkert umhverfisslys verði á verktíma.
- Ekkert rask verði fyrir utan þau svæði sem skilgreind eru sem framkvæmdasvæði. Innan framkvæmdasvæðis verði tekið tillit til lífríkis eins og kostur er.
- Engin óstýrð losun óæskilegra efna fari fram á verktíma.
Þessar áherslur Landsnets eru hluti af útboðsgögnum og gerð sú krafa til ráðgjafa og verktaka, sem koma að slíkum verkum, að þeir fylgi umhverfisstefnunni og taki tillit til umhverfisins í hvívetna. Á framkvæmdartíma er haft eftirlit með því að þessum, sem og öðrum ákvæðum samninga, sé fylgt eftir. Eftirlitið er bæði á vegum Landsnets og á vegum opinberra aðila.
Til þess að hnykkja á því að frágangur í verklok sé í anda stefnunnar hefur Landsnet tekið upp það verklag að gera umhverfisúttekt á öllum nýjum mannvirkjum í verklok. Í henni taka þátt fulltrúar allra helstu hagsmunaaðila, s.s. sveitarfélaga og landeiganda.








Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi