Forsíða Umhverfisstefna Mótvægisaðgerðir

Mótvægisaðgerðir

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

landsnet_stjornstodLandsnet fylgist stöðugt með þróun og framförum í hönnun flutningskerfis raforku og kappkostar að nýta nýjustu tækni, eftir því sem hentar hverju sinni, með það að markmiði að valda sem minnstum umhverfisáhrifum.

Rými fyrir nýjar flutningsleiðir er vandfundið og því þarf að anna aukinni flutningsþörf með færri línum og flutningsmeiri.

Sogslína 2 verður rifin
Sogslína 2 verður rifin og öflugri línur
lagðar í staðinn.

Beinar mótvægisaðgerðir vegna endurnýjunar og eflingar flutningskerfisins á Suðvesturlandi miðast við að eldri háspennulínur verði rifnar og nýjar og öflugri línur lagðar í staðinn eftir sömu línuleið. Jafnframt stuðlar val á mastrategundum að því að lágmarka sjónræn áhrif flutningskerfisins.