Forsíða Umhverfisstefna Afturkræf áhrif

Afturkræf áhrif

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

helgaf_sandsk209Sjónræn áhrif nýrra flutningsvirkja vega þungt og gerir Landsnet sér grein fyrir mikilvægi umhverfisvænna lausna. Á síðustu árum hefur skapast umræða á Íslandi og í nágrannalöndum okkar um að jarðstrengir leysi loftlínur af hólmi til að minnka sjónræn áhrif flutningskerfisins.

mannafliHáspennulínur með  yfir 100 kílóvolta (kV) spennu eru almennt lagðar sem loftlínur hér á landi, eins og reyndar um heim allan, og eru umhverfisáhrif þeirra að mestu leyti afturkræf því þau eru fyrst og fremst sjónræn. Fjarlægja má línur og möstur, eins og dæmin sanna, en annað er hins vegar upp á teningnum hvað varðar jarðstrengi með yfir 100 kV spennu. Varanlegt umhverfisrask fylgir lagningu háspenntra jarðstrengja því ryðja þarf breitt belti fyrir bæði slóða og leiðara eftir allri flutningsleiðinni. Þá má nefna að mun takmarkaðri nytjar eru leyfilegar á helgunarsvæði jarðstrengs en loftlínu, svo ekki sé minnst á kostnaðarmuninn.