Hlutverk Landsnets er að annast flutning raforku og uppbyggingu og stýringu raforkuflutningskerfisins á Íslandi sem telur samtals um 3.200 km af háspennulínum.
Það er stefna Landsnets að lágmarka óæskileg áhrif starfsseminnar á umhverfið og standa við allar þær skuldbindingar sínar í hvívetna. Fyrirtækið leggur metnað sinn í að umgangast landið af virðingu, forðast allt óþarfa rask og taka tillit til umhverfis og náttúru, hvor sem um er að ræða undirbúning nýrra framkvæmda, viðhald flutningskerfisins eða niðurrif gamalla mannvirkja. Þá er lögð áhersla á góða samvinnu og sátt við helstu hagsmunahópa, s.s. ábúendur, sveitarfélög og félagasamtök.
Með markvissri stjórnun umhverfismála vill Landsnet:
- Lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið
- Fylgjast með umhverfisáhrifum rekstursins og grípa til aðgerða ef þörf krefur
- Eiga opna og hreinskipta umræðu og samvinnu við yfirvöld, stofnanir og almenning um umhverfismál
- Leggja sitt af mörkum til að bæta árangur samfélagsins í umhverfismálum
Stefna og gildi Landsnets endurspegla þessar áherslur.



Umhverfisstefna



Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi