Forsíða Skipulagsmál

Skipulagsmál

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Megnið af því landi sem Suðvesturlínur fara um er í eigu einstaklinga, sveitarfélaga eða annarra lögaðila. Viðkomandi sveitarfélög bera ábyrgð á stefnumótun aðalskipulags, skv. skipulags- og byggingarlögum, og færa þarf nýjar loftlínur inn á aðalskipulag áður en leyfi er gefið til framkvæmda. Mikil áhersla hefur því verið lögð á samráð við þessa aðila frá því undirbúningur verkefnisins hófst.

Svæðisskipulag

  • Svæðaskipulager landnotkunaráætlun fyrir allt land tveggja eða fleiri sveitarfélaga sem unnin er til að samræma stefnu sveitarstjórnanna um þróun byggðar og landnotkunar á minnst 12 ára tímabili. Svæðisskipulag er bæði stjórntæki og stefnuyfirlýsing sveitarstjórnanna í viðkomandi málaflokkum og stuðlar að sameiginlegri framtíðarsýn allra, sveitarstjórna, íbúa og annarra hagsmunaaðila.

Aðalskipulag

  • Aðalskipulager skipulagsáætlun sem nær til alls landssvæðis eins sveitarfélags þar sem sveitarstjórn setur fram stefnu sína um landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál í sveitarfélaginu til minnst 12 ára.
  • Sveitarstjórn ber að vinna að aðalskipulagi í samráði við íbúa sveitarfélagsins og aðra hagsmunaaðila, auk þess sem sveitarstjórn ber að leita til ýmissa opinberra aðila um mótun aðalskipulagsstefnunnar.
  • Við breytingu á aðalskipulagi skal meta umhverfisáhrif áætlunarinnar, í samræmi við ákvæði laga nr. 105/2006 um mat á umhverfisáhrifum.
    ferli_vid_breytingu_adalskipulagi

Deiliskipulag

  • Deiliskipulagnær til einstakra svæða innan sveitarfélags og er nánari útfærsla á aðalskipulagi. Það er lagalegur grundvöllur fyrir útgáfu bygginga- og framkvæmdaleyfa og er ætlað að tryggja réttaröryggi og gæði manngerðs umhverfis í þéttbýli og dreifbýli.