Leyfisveitendur

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Framkvæmdin er jafnframt háð leyfisveitingum frá eftirtöldum aðilum:

Orkustofnun

Til byggingar háspennulína sem reknar eru á 66 kV spennu eða hærri þarf Landsnet leyfi Orkustofnunar, fyrir hönd iðnaðarráðherra.

Sveitarstjórnum sveitarfélaga sem háspennulínur liggja um

Ölfus Mosfellsbær
Seltjarnarnes Reykjavík
Kópavogur Garðabær
Álftanes Hafnarfjörður
Reykjanesbær Grindavíkurbær
Sveitarfélagið Garður Sveitarfélagið Vogar

Gert er ráð fyrir að sveitarstjórnir veiti framkvæmdaleyfi á grundvelli staðfests skipulags, álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum og leyfis iðnaðarráðherra.

Heilbrigðiseftirlitum svæða sem umræddar línur fara um. Þau eru:

Sækja þarf um starfsleyfi til viðkomandi heilbrigðiseftirlita, svo sem vegna vinnubúða, efnistökustaða o.fl. Framkvæmdirnar eru einnig að hluta innan vatnsverndarsvæða og því háðar skilyrðum sem sett eru af heilbrigðiseftirlitum varðandi umgengni, ástand tækjabúnaðar o.fl.

Fornleifavernd ríkisins
Ekki er leyfilegt að raska fornminjum nema með leyfi Fornleifaverndar ríkisins.

Umhverfisstofnun þarf að veita leyfi vegna framkvæmda innan Reykjanesfólkvangs og Bláfjallafólkvangs, sbr. lög nr. 44/1999 um náttúruvernd, gr. 38 um leyfi til framkvæmda innan svæða á náttúruminjaskrá, og gr. 37 um leyfi til framkvæmda sem raskað geta jarðmyndununum og vistkerfum sem njóta sérstakrar verndar.

Við hönnun og setningu háspennulína skal fylgja ákvæðum reglugerðar um raforkuvirki nr. 264/1971 og áorðnum breytingum (breyting nr. 1160/2007).