![]() |
| Horft yfir Hafnarfjörð til vesturs. |
Núverandi vegslóðar verða notaðir eins og unnt er en annars verður eins litlu raskað og unnt er. Óhjákvæmilegt er að fara inn á ósnortin svæði á nokkrum stöðum, einkum ofan Hafnafjarðar. Jarðskaut eru sett í mastrastæði og línuslóðir. Jarðstrengir verða lagðir frá nýrri virkjun við Hverahlíð að tengivirki á Hellisheiði, í Hafnarfirði milli Hamraness og Hrauntungna, milli Njarðvíkurheiðar og Fitja og frá Fitjum að fyrirhuguðu álveri í Helguvík.
Ekki er gert ráð fyrir að opna nýjar efnisnámur vegna framkvæmdanna.
Framkvæmdasvæðið liggur að hluta um vatnsverndarsvæði og því er mikilvægt að farið sé að þeim ákvæðum sem gilda um umferð innan slíkra svæða svo ekki skapist hætta á mengun af völdum tækjabúnaðar og umgengni.








Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi