Forsíða Matsvinna Umhverfisáhrif

Umhverfisáhrif

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Helstu þættir fyrirhugaðra framkvæmda sem valda umhverfisáhrifum eru háspennulínur, jarðrask vegna vegslóða, jarðskauta og jarðstrengja, efnistaka, verkþættir á framkvæmdartíma og umferð á rekstrartíma.

Meðal nýmæla sem bryddað er upp á í frummatsskýrslu vegna mats á umhverfisáhrifum Suðvesturlína eru sýnileikakort sem auðvelda mönnum að sjá í sviphendingu hvort verkefnið eykur eða dregur úr sýnileika línanna á tilteknum svæðum. Blár litur merkir að það dregur úr sýnileika háspennulína en rauður litur merkir að sýnileiki aukist.

Í frummatsskýrslunni er jafnframt lagt mikið upp úr gerð líkanmynda sem sýna tiltekna staði á línuleiðinni, fyrir og eftir framkvæmdir, og auðvelda mönnum að átta sig á sjónrænum áhrifum framkvæmdarinnar.

Með því að smella á punktana á sýnileikakortinu hér fyrir neðan er hægt að sjá umhverfisbreytingar sem verða á viðkomandi stöðum. Sums staðar aukast umhverfisáhrif en annars staðar dregur úr þeim.

Smellið hérna - Sýnileikakort