Frummatsskýrslu var skilað til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun í maí 2009 og er frestur til að senda athugasemdir til stofnunarinnar til 2. júlí 2009.
Niðurstöður frummatsskýrslunnar verða kynntar almenningi í samráði við Skipulagsstofnun dagana 5. - 8. júní 2009 en skýrslan hefur verið auglýst og gerð aðgengileg á opinberum stöðum, auk þess að verða aðgengileg hér á vefnum.
Vonir standa til að álit Skipulagsstofnunar á frummatsmatsskýrslunni geti legið fyrir um miðjan ágúst 2009.
Nú er stefnt að því að framkvæmdir við línurnar geti hafist vorið eða sumarið 2010 og miðað við að framkvæmdir standi með hléum til ársins 2017. Þessar tímasetningar eru þór birtar með fyrirvara um breytingu.








Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi