Forsíða Matsvinna Framkvæmda- og áhrifasvæði

Framkvæmda- og áhrifasvæði

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
reykjaneslina_vinna
Vinna við Reykjaneslínu.
forsteypt-undirstad-buradrmas
Undirstaða burðarmasturs
Framkvæmdasvæði háspennulína er bundið við það svæði sem fer undir línurnar og næsta nágrenni þeirra og ræðst umfang þess einna helst af eftirfarandi þáttum:
  • Jarðraski sem bundið er við slóðir, námur og mastrastæði. Slóðagerð meðfram núverandi línum er hægt að halda í lágmarki þar sem línuvegir hafa víðast hvar þegar verið gerðir. Hins vegar þarf að leggja hliðarslóðir frá núverandi línuvegum að nýjum mastrastæðum og jafnframt þarf að leggja nýjan línuveg þar sem línur fylgja ekki núverandi línum.Truflun á framkvæmdatíma, s.s. vegna samsetningar leiðara og umferðar vinnuvéla, er bundin við næsta nágrenni línanna og aðkomuleiðir.
  • Helgunarsvæði línanna (svokallað byggingabann), sem er háð haflengd á milli mastra og fellur að hluta saman við helgunarsvæði núverandi lína.

Áhrifasvæði framkvæmdarinnar er það svæði þar sem ætla má að áhrifa af völdum framkvæmdarinnar gæti, bæði á framkvæmdatíma og á rekstrartíma. Við mat á áhrifum er áhrifasvæðinu skipt í fernt:

  • Bein áhrif á umhverfið: Miðað við u. þ. b. 100 metra svæði beggja vegna við línuleiðirnar. Þetta er rýmra en skilgreint framkvæmdasvæði.
  • Áhrif á fuglalíf: Við umfjöllun um áhrif á fugla er auk ofangreinds athugunarsvæðis horft til stærra svæðis þar sem ástæða þykir til, t.d. vegna áflugshættu.
  • Áhrif á landslag og sjónræna þætti: Áhrifasvæði vegna þessara rannsókna er víðfeðmt og til að skapa sem gleggsta mynd af stöðu mála var sýnileiki bæði núverandi og fyrirhugaðra lína kortlagður, sjá sýnileikakort.
  • Áhrif á samfélag: Áhrifasvæði vegna áhrifa á samfélagslega þætti, útivist, ferðamennsku, atvinnu og þess háttar getur í mörgum tilvikum verið óljóst og einskorðast ekki við ákveðið belti meðfram háspennulínunum. Staðir í nágrenni línanna eru skoðaðir sérstaklega í þessu tilliti.

 

2. hluti - Loftmyndakort :
Loftmyndakort af línuleiðum, mkv. 1:20.000
3. hluti - Þemakort :
Vatnsvernd, mkv. 1:180.000
Náttúruvernd, mkv. 1:180.000
Fornminjar, mkv. 1:20.000