Forsíða Matsvinna

Matsvinna

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

ReykjaneslínaSuðvesturlínur; endurnýjað flutningskerfi raforku á Suðvesturlandi, falla undir lög um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000, viðauka 1 og viðauka 2. Framkvæmdin nær einnig yfir lagningu jarðstrengja sem eru e.t.v. ekki matsskyldir strangt til tekið sbr. tl. 3b í 2. viðauka laganna.

Ýmsir kostir hafa verið til skoðunar í samráði við sveitarfélög og aðra hagsmunaðila um styrkingu meginflutningskerfis raforku á Suðvesturlandi, frá Hellisheiði út á Reykjanes.

Í september 2006 voru lögð fram drög að tillögu að matsáætlun fyrir línur frá Hellisheiði að Straumsvík en verulegar breytingar hafa orðið á forsendum verkefnisins frá þeim tíma. Það hefur jafnframt verið sameinað öðru verkefni, sem náði yfir svæðið frá Hafnarfirði að Helguvík og að Reykjanesvirkjun.

Víðtækt samráð
Við undirbúning framkvæmdar hefur verið haft samráð við sveitarstjórnir og verkefnið kynnt víða, þ.á m. fyrir leyfisveitendum, lögbundnum umsagnaraðilum, landeigendum og hagsmunaaðilum. Leitast hefur við að taka mið af athugasemdum sem fram hafa komið. Drög að matsáætlun fyrir verkefnið voru kynnt almenningi, hagsmunaaðilum og þeim fagstofnunum sem hafa lögbundið hlutverk við matsferlið, í desember 2008. Tillaga að matsáætlun var lögð inn til Skipulagsstofnunar í janúar 2009, með athugasemdafresti til 13. febrúar 2009, og var hún kynnt ítarlega fyrir umsagnar- og hagsmunaaðilum, auk þess sem haldin voru opin hús í Reykjanesbæ, Vogum og Hafnarfirði í byrjun febrúar 2009. Skipulagsstofnun samþykkti tillöguna þann 26. mars 2009 og var frummatsskýrslan, sem lögð var inn til Skipulagsstofnunar til málsmeðferðar þann 20. maí 2009,  unnin á grundvelli hennar. Frestur til að gera athugasemdir við frummatsskýrsluna er til 2. júlí 2009.