Forsíða Fréttir

Fréttir um Suðvesturlínur

Forsendur núverandi meirihluta sveitarstjórnar Voga út úr korti

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

stofnlinNúverandi meirihluti sveitarstjórnar Voga hefur byggt afstöðu sína um að háspennulínur þær sem Landsnet hyggst reisa skuli leggja í jörð að stórum hluta á greinargerð Almennu verkfræðistofunnar (AV) sem gerð var í mars 2008, eins og meðal annars kemur fram í frétt RÚV í kvöldfréttum sjónvarps, 11. október sl. Landsnet mótmælti strax á þeim tíma forsendum sem lagðar voru til grundvallar landverði í skýrslu AV og hvernig það var nýtt með margföldunaráhrifum til að lækka kostnaðarmun á milli háspennulína í lofti annars vegar og hins vegar háspenntra jarðstrengja.

Lesa meira...
 

Yfirlýsing frá Landsneti

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

reykjaneslinaLandsnet sendi í morgun frá sér eftirfarandi yfirlýsingu í tilefni af fréttaflutningi vegna samþykktar meirihluta bæjarstjórnar Voga sl. miðvikudag, þess efnis að aðalskipulag sveitarfélagsins „verði tekið upp meðal annars með það að markmiði að breyta þeim hluta Suðurnesjalína sem liggur innan sveitarféalgsins úr loftlínum í jarðstreng".

Lesa meira...
 

Jarðstrengur hefur meiri umhverfisáhrif á hrauni þakið land en loftlína

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

1a: Hér er 11 kV strengur plægður niður.Oft er því varpað fram í umræðum um lagningu háspennulína að það hafi mun minni áhrif á umhverfið að leggja línurnar í jörð en loftleiðis á möstrum, nú síðast í tengslum við undirbúning að lagningu Suðvesturlína um Reykjanes. Vissulega má til sanns vegar færa að umhverfisáhrif jarðstrengja eru oft minni en loftlína en algilt er það alls ekki.

Lesa meira...
 

Undirbúningur hafinn að styrkingu flutningskerfisins á Suðurnesjum

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

sudunesjalina2Landsnet hefur hafið undirbúning að styrkingu raforkuflutningskerfisins á Suðurnesjum frá Hafnarfirði að tengivirki við Rauðamel í Grindavík. Verkefnið felst í byggingu nýrrar 220 kV línu, Suðurnesjalínu 2.

Lesa meira...
 

Mati á umhverfisáhrifum Suðvesturlína lokið

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

HáspennumasturUmhverfismati Suðvesturlína er lokið og hefur Skipulagsstofnun fallist á mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar með skilyrðum um vöktun. Umhverfisráðherra hefur jafnframt komist að þeirri niðurstöðu að ekki þurfi að fara fram sameiginlegt mat Suðvesturlína og annarra framkvæmda við iðnað eða orkuöflun sem eru í undirbúningi á suðvesturhorni landsins.

Lesa meira...
 

Suðvesturlínur ekki í sameiginlegt mat

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

SuðvesturlínurUmhverfisráðuneytið staðfesti í dag ákvörðun Skipulagsstofnunar um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar Suðvesturlínur, styrking raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi, og öðrum framkvæmdum sem henni eru háðar og/eða eru á sama svæði.

Lesa meira...
 

Ákvörðun Skipulagsstofnunar kærð til umhverfisráðherra

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Þrjár kærur hafa borist umhverfisráðuneytinu vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína og tengdra framkvæmda en kærufrestur rann út 4. desember síðastliðinn.

Lesa meira...
 

Suðvesturlínur í Kastljósinu

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Suðvesturlínur í KastljósinuUndirbúningur Suðvesturlína var til umfjöllunar í Kastljósi Sjónvarpsins í gær. Þar ræddi Þóra Arnórsdóttir við þá Björgólf Thorsteinsson, formann Landverndar, Eirík Hjálmarsson, upplýsingafulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur, og Ólaf Árnason, verkefnisstjóra Landsnets við mat á umhverfisáhrifum línanna.

Lesa meira...
 

Yfirlýsing frá Landsneti

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Vegna umsagnar Landsnets til Skipulagsstofnunar um afstöðu fyrirtækisins til sameiginlegs mats á umhverfisáhrifum Suðvesturlína og orkuvera á Reykjanesi skal áréttað að Suðvesturlínur munu geta annað aflþörf stækkaðs álvers í Helguvík, ef til kemur, sem og öðrum framtíðaráformum um uppbyggingu iðnaðar og orkuöflun á svæðinu, sbr. umsögn fyrirtækisins til Skipulagsstofnunar dags. 14. október 2009.

Lesa meira...
 

Suðvesturlínur þurfa ekki í sameiginlegt mat

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

BúrfellslínaSkipulagsstofnun ákvað í dag að Suðvesturlínur, styrking raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi skuli ekki metin með öðrum framkvæmdum sem henni eru háðar og/eða eru á sama svæði. Kærufrestur vegna ákvörðunarinnar er til 4. desember næstkomandi.

Lesa meira...
 

Hverfandi hætta á mengun grunnvatns og fyllsta öryggis gætt

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

sudesturlinur_28102009Hverfandi hætta er á mengun vatnsbóla höfuðborgarsvæðisins vegna tæringar á möstrum fyrirhugaðra Suðvesturlína. Þetta er niðurstaða rannsókna sem fram fóru vegna mats á umhverfisáhrifum verkefnisins. Umfangsmiklar mótvægisaðgerðir eru jafnframt fyrirhugaðar til að tryggja öryggi vatnsbólanna og meðal annars verða framkvæmdir ekki leyfðar á vatnsverndarsvæðum að vetrarlagi.

Lesa meira...
 
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL