Í áliti Skipulagsstofnunar kom m.a. fram að neikvæðustu áhrif fyrirhugaðra framkvæmda verði sjónræn áhrif og áhrif á landslag og þar með einnig á útivist og ferðaþjónustu. Telur Skipulagsstofnun að heildaráhrif fyrirhugaðra framkvæmda m.t.t. þessara umhverfisþátta verði óhjákvæmilega verulega neikvæð. Þegar á heildina sé litið aukist umfang raforkulína og mastra talsvert miðað við núverandi aðstæður, þó svo það sé jákvætt að hluti af núverandi línum verði fjarlægður, eða um 100 km. Skipulagsstofnun telur einnig að áhrifin verði talsvert neikvæð þegar litið er til heildaráhrifa fyrirhugaðra framkvæmda á jarðmyndanir og gróður þar sem nútímahraun muni raskast á óafturkræfan hátt á alls tæplega 30 ha landssvæði. Áflugshætta er líka talin geta haft talsverð neikvæð áhrif á fugla á löngum köflum fyrirhugaðar línuleiðar en á móti komi jákvæð áhrif vegna fyrirhugaðs niðurrifs núverandi lína um Heiðmerkursvæðið.
Fyrirhugað er að reisa 507 ný möstur og leggja milli 180 og 190 km af loftlínum og um 50 km af jarðstrengjum vegna Suðvesturlína en á móti verða rifin 403 eldri möstur. Gert er ráð fyrir að framkvæmdunum verði skipt upp í fimm áfanga og var kostnaður við fyrstu fjóra áfangana metinn um 27 milljarðar króna, á verðlagi í janúar 2009, en kostnaður við fimmta áfangann liggur ekki fyrir. Mannaflaþörf fyrir fyrstu fjóra áfangana er áætluð um 380 ársverk.
Þurfti ekki í sameiginlegt umhverfismat
Í kjölfar álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína var kærð til umhverfisráðherra sú ákvörðun stofnunarinnar að línurnar þyrftu ekki að fara í sameiginlegt umhverfismat. Var Skipulagsstofnun gert að taka málið fyrir að nýju en niðurstaða hennar varð sú sama; að ekki bæri að setja línuframkvæmdina í sameiginlegt umhverfismat með öðrum tengdum verkefnum. Staðfesti umhverfisráðherra þá niðurstöðu Skipulagsstofnunar í janúarlok á þessu ári.
Hægt er að nálgast álit Skipulagsstofnunar í heild sinni á vef stofnunarinnar og einnig hér á verkefnavefnum sudvesturlinur.is.



Mati á umhverfisáhrifum Suðvesturlína lokið



Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi