Suðvesturlínur

Velkomin á vef um uppbyggingu öflugs og öruggs flutningskerfis raforku á Suðvesturlandi - frá Hellisheiði að Geithálsi og Hafnafirði og áfram út á Reykjanes.

Hér verður leitast við að koma á framfæri upplýsingum um undirbúning og framvindu verkefnisins.

Sendið okkur línu; ábendingar, athugasemdir eða fyrirspurnir!

Forsíða Suðvesturlínur ekki í sameiginlegt mat

Suðvesturlínur ekki í sameiginlegt mat

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

SuðvesturlínurUmhverfisráðuneytið staðfesti í dag ákvörðun Skipulagsstofnunar um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar Suðvesturlínur, styrking raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi, og öðrum framkvæmdum sem henni eru háðar og/eða eru á sama svæði.

Kærur vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar frá 30. október 2009 um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína og framkvæmdum sem henni eru tengdar bárust umhverfisráðuneytinu frá Landvernd, Náttúruverndarsamtökum Íslands og Græna netinu, en síðastnefndu kærunni var vísað frá þar sem skilyrði vegna kæruliðar voru ekki uppfyllt. Einnig barst ráðuneytinu bréf frá félaginu Norðurál Helguvik ehf. með kröfu um að ráðherra staðfesti ákvörðun Skipulagsstofnunar þar sem engin þörf væri á að afla frekari umsagna í málinu.

Forsaga málsins er sú að með úrskurði sínum 29. september 2009 vísaði umhverfisráðherra fyrri ákvörðun Skipulagsstofnunar vegna Suðurvesturlína, frá 25. mars 2009, til nýrrar efnislegrar meðferðar hjá stofnuninni þar sem málið taldist ekki nægjanlega upplýst. Í þeim úrskurði ráðuneytisins fólst ekki efnisleg afstaða og tók Skipulagsstofnun það til efnismeðferðar á ný og tók ákvörðun í málinu þann 30. október 2009. Niðurstaða Skipulagsstofnunar var að ekki skyldi fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar Suðvesturlínur, styrking raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi, með öðrum framkvæmdum sem henni væru háðar og/eða væru á sama svæði.

Upplýst á fullnægjandi hátt

Það er niðurstaða umhverfisráðuneytis í dag að málið hafi verið upplýst á fullnægjandi hátt af hálfu Skipulagsstofnunar og að stofnunin hafi þar með uppfyllt rannsóknarskyldu sína í málinu. Þá er áréttað að ráðuneytið telji ekki forsendur vera til staðar fyrir sameiginlegu mati þar sem upplýsingar um þær framkvæmdir sem hafa komið til álita til sameiginlegs mats með Suðvesturlínum hafi leitt í ljós að mati á umhverfisáhrifum þeirra hafi ýmist verið lokið eða hafi formlega hafist áður en ákvörðun var tekin um sameiginlegt mat af Skipulagsstofnun í málinu. Jafnframt sé um að ræða hugmyndir um framkvæmdir sem ekki séu komnar á það stig að unnt sé að meta umhverfisáhrif þeirra sökum óvissu um hvort og þá hvenær í þær verði ráðist.

Er það mat ráðuneytisins að ekki séu til staðar forsendur til að beita ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum til sameiginlegs mats á Suðvesturlínum og öðrum mögulegum framkvæmdum sem háðar eru línunum og eru á sama svæði og eru úrskurðarorð ráðuneytisins að: „Hin kærða ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 30. október 2009 er staðfest“. Undir úrskurðinn skrifa fyrir hönd ráðherra Magnús Jóhannesson og Steinunn Fjóla Sigurðardóttir.

Úrskurður umhverfisráðuneytis

 

Nýjustu fréttir

Póstlisti Suðvesturlína

Fylgstu með framgangi verkefnisins með því að fá nýjustu fréttirnar í tölvupósti.



Landsnet