Suðvesturlínur

Velkomin á vef um uppbyggingu öflugs og öruggs flutningskerfis raforku á Suðvesturlandi - frá Hellisheiði að Geithálsi og Hafnafirði og áfram út á Reykjanes.

Hér verður leitast við að koma á framfæri upplýsingum um undirbúning og framvindu verkefnisins.

Sendið okkur línu; ábendingar, athugasemdir eða fyrirspurnir!

Forsíða Ákvörðun Skipulagsstofnunar kærð til umhverfisráðherra

Ákvörðun Skipulagsstofnunar kærð til umhverfisráðherra

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Þrjár kærur hafa borist umhverfisráðuneytinu vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína og tengdra framkvæmda en kærufrestur rann út 4. desember síðastliðinn.


Kæra Græna netsins, félags jafnaðarmanna um umhverfið, náttúruna og framtíðina, byggist á því að ávinningur af sameiginlegu mati línulagnar, áformaðs álvers í Helguvík, virkjana og fleiri framkvæmda náist ekki með umhverfismati hverrar og einnar af þessum framkvæmdum og réttur almennings til fullrar upplýsingar og áhrifa vegi þyngra en rök Skipulagsstofnunar um óhagræði framkvæmdanna af sameiginlegu mati.


Kæra Náttúruverndarsamtaka Íslands byggir á þeim rökum að mat á umhverfisáhrifum verði að meta tengdar framkvæmdir, framkvæmdir sem háðar eru hver annarri (álver, orkuver og raflínulagnir, auk vegagerðar) sameiginlega. Um afar stórar framkvæmdir sé að ræða og ljóst að ekki fáist heildarmynd af umhverfisáhrifum þeirra nema þær verði metnar saman í einu lagi.


Þriðja kæran er frá Landvernd og þar kemur m.a. fram að Skipulagsstofnun hafi ekki haft forsendur fyrir ákvörðun sinni, þar sem ekki hafi verið búið að upplýsa nema að hluta hvaðan orkan vegna framkvæmdanna ætti að koma.


Samkvæmt lögum hefur umhverfisráðherra nú tvo mánuði til að úrskurða í málinu.

 

Nýjustu fréttir

Póstlisti Suðvesturlína

Fylgstu með framgangi verkefnisins með því að fá nýjustu fréttirnar í tölvupósti.



Landsnet