Skipulagsstofnun ákvað í dag að Suðvesturlínur, styrking raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi skuli ekki metin með öðrum framkvæmdum sem henni eru háðar og/eða eru á sama svæði. Kærufrestur vegna ákvörðunarinnar er til 4. desember næstkomandi.
Með ákvörðuninni í dag staðfestir Skipulagsstofnun fyrri ákvörðun sína í málinu en umhverfisráðherra felldi hana úr gildi í lok september í kjölfar kærumála og fól stofnunni að taka málið aftur til efnislegrar meðferðar vegna ágalla á málsmeðferðinni. Þau sjónarmið sem umhverfisráðherra lagði helst til grundvallar niðurstöðu sinni voru þau að Skipulagsstofnun hefði ekki upplýst málið nægjanlega og að stofnunin hefði ekki haft nægilegt samráð við framkvæmdaraðila og leyfisveitendur áður en hún tók ákvörðun.
Á því hefur nú verið ráðin bót og eru svör viðkomandi rakin í meginatriðum í ákvörðun Skipulagsstofnunar frá í dag. Niðurstaða er, eins og fyrr segir, að ekki skuli meta Suðvesturlínur með framkvæmdum sem henni eru háðar eða eru á sama svæði. Hægt er að kæra niðurstöðu Skipulagsstofnunar til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 4. desember 2009.



Suðvesturlínur þurfa ekki í sameiginlegt mat

Ákvörðun Skipulagsstofnunar
