Hverfandi hætta er á mengun vatnsbóla höfuðborgarsvæðisins vegna tæringar á möstrum fyrirhugaðra Suðvesturlína. Þetta er niðurstaða rannsókna sem fram fóru vegna mats á umhverfisáhrifum verkefnisins. Umfangsmiklar mótvægisaðgerðir eru jafnframt fyrirhugaðar til að tryggja öryggi vatnsbólanna og meðal annars verða framkvæmdir ekki leyfðar á vatnsverndarsvæðum að vetrarlagi.
Vegna frétta um að heilbrigðiseftirlit á höfuðborgarsvæðinu hafi lýst yfir áhyggjum að framkvæmdir við lagningu Suðvesturlína verði á vatnsverndarsvæðum vill Landsnet árétta að náið samráð var haft við bæði heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar og heilbrigðiseftirlit annarra sveitarfélaga við mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína. Engin þessara stofnana lagðist gegn framkvæmdinni, enda fullt tillit tekið til athugasemda og ábendinga sem þær settu fram í umsögnum sínum um umhverfismatsskýrsluna, sem Skipulagsstofnun féllst svo á með athugasemdum í haust.
Línur fjarlægðar af Gvendarbrunnasvæðinu
Alls verða um 500 ný möstur reist vegna Suðvesturlína en á móti verða rifin um 400 möstur, þar á meðal svokölluð Hamraneslína sem nú liggur um Gvendarbrunnasvæðið og Heiðmörkina. Það er því ekki rétt að Suðvesturlínur muni liggja um Gvendarbrunna, eins og haldið hefur verið fram í fréttum, en nýjar línur verða lagðar fjær höfuðborgarsvæðinu, samsíða línu sem liggur frá Sandskeiði að Hrauntungum og fer að hluta um vatnsverndarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Í umhverfismatinu var það skoðað sérstaklega hvort aðrar leiðir væru færar fyrir þessar línuleiðir - utan vatnsverndarsvæðisins - en niðurstaðan var sú að það væri ekki fýsilegt. Þá hefði þurft að fara um óraskað land og viðkvæm svæði, bæði í Bláfjalla- og Reykjanesfólkvangi, og ekki hefði verið hægt að nýta fyrirliggjandi línuslóðir sem minnkar til muna umfang og áhrif framkvæmdanna.
Hverfandi líkur á mengun frá möstrum
Ítarleg umfjöllun er um vatnsverndarsvæðin og fyrirhugaðar mótvægisaðgerðir í skýrslu um mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína. Þar kemur m.a. fram í samantekt að áhrif framkvæmdanna á vatnsverndarsvæði verði fyrst og fremst vegna jarðrasks við slóða- og planagerð og uppsetningu mastra, sem og vegna aukinnar umferðar á framkvæmdatíma og umferðar vegna almenns viðhalds. Kannað var sérstaklega hvort hætta væri á mengun grunnvatns vegna veðrunar línumastra en það er niðurstaða rannsókna innlendra og erlendra sérfræðinga að hverfandi líkur séu á að útskolun á sinki eða þungmálmum geti valdið grunnvatnsmengun en málmana er að finna í galvanhúðun mastra. Til öryggis verður þó haft strangt eftirlit með gæðum og efnasamsetningu galvanhúðar á möstrum sem notuð verða, fyrst og fremst vegna hugsanlegra áhrifa á gróður.
Margþættar mótvægisaðgerðir
Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins liggur línustæði Suðvesturlína að hluta um grann- og brunnsvæði vatnsbóla. Til að tryggja öryggi vatnsbólanna á framkvæmdatímanum verður óheimilt að vinna þar að vetrarlagi. Jafnframt mun Landsnet gera þá kröfu í útboðsgögnum að tækjakostur fyrir verkið verði valinn með það fyrir augum að lágmarka umfang slóða og efnisþörf vegna verkefnisins. Núverandi línuslóðir verða nýttar eins og kostur er og slóðir sem liggja um vatnsverndarsvæði verða lokaðar fyrir almennri umferð ökutækja og merktar sérstaklega. Til að hindra að mengunarslys með varanlegum afleiðingum verði á vatnsverndarsvæðum verður sú krafa jafnframt gerð til verktaka og annarra sem vinna þar að þeir lágmarki alla umferð með olíu um svæði þar sem berggrunnur er opinn. Þess verður einnig krafist að á grann- og brunnsvæðum verði öllum tækjum og vinnuvélum lagt á þar til gerða dúka sem safna í sig olíu og glussa, ef óhapp á sér stað. Þá verður skilyrt að olíuhreinsunarbúnaður verði ávallt tiltækur nálægt vinnuvélum. Enn fremur verður fullnægjandi ástand vinnutækja tryggt til að lágmarka enn frekar þá mengunarhættu sem skapast getur við framkvæmdir sem þessar.
Umhverfis- og öryggismál í brennidepli
Eins og sjá af fyrirhugðum mótvægisaðgerðum leggur Landsnet mikla áherslu á að tryggja sem best að fyllsta öryggis verði gætt við framkvæmdir á vatnsverndarsvæðunum. Þá verður við undirbúning framkvæmdaleyfis og gerð útboðsgagna gerð ítarleg umhverfis-, öryggis- og heilbrigðisáætlun þar sem tekið verður á þáttum sem lúta að mengunarhættu, öryggi og umgengni á framkvæmdatímanum. Einnig verða tryggðar reglulegar skoðunar- og eftirlitsferðir með eftirlitsmönnum verkkaupa og sveitarfélaga, fulltrúum Umhverfisstofnunar og heilbrigðiseftirlita. Loks er þess að geta að við verklok mun Landsnet vinna sérstaka umhverfisúttekt í samráði við fyrrgreinda aðila þar sem verður vegið og metið hvernig til hafi tekist.



Hverfandi hætta á mengun grunnvatns og fyllsta öryggis gætt



Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi