Suðvesturlínur

Velkomin á vef um uppbyggingu öflugs og öruggs flutningskerfis raforku á Suðvesturlandi - frá Hellisheiði að Geithálsi og Hafnafirði og áfram út á Reykjanes.

Hér verður leitast við að koma á framfæri upplýsingum um undirbúning og framvindu verkefnisins.

Sendið okkur línu; ábendingar, athugasemdir eða fyrirspurnir!

Forsíða Gæti seinkað Suðvesturlínum um að minnsta kosti 3-4 mánuði

Gæti seinkað Suðvesturlínum um að minnsta kosti 3-4 mánuði

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Viðtal við Guðmund Inga Ásmundsson, aðstoðarforstjóra Landsnets í Land og Saga.Úrskurður umhverfisráðherra um að fella úr gildi ákvörðun skipulagsstofnunar þess efnis að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína og öðrum hugsanlega tengdum orkuframkvæmdum skapar óvissu um tímasetningar verkefnisins og leiðir til að minnsta kosti 3- 4 mánaða seinkunnar þess að mati Guðmundar Inga Ásmundssonar, aðstoðarforstjóra Landsnets. Þetta kemur fram í viðtali við hann í nýjasta tölublaði Lands og sögu, blaði um skipulag, byggingar og hönnun sem dreift var með Morgunblaðinu um helgina.

Í viðtalinu kemur fram að aðstoðarforstjóri Landsnets telji óraunhæft að Suðvesturlínur verði metnar sameiginlega með orkuframleiðslu á þeim stöðum sem Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands fara fram á því kerfið sé ekki háð orkuframleiðslu þar. Hann segir að það væri mikil skammsýni að mati Landsnets að horfa einungis til einstakra framkvæmda í stað þess að spá fyrir um framþróunina til lengri tíma. Það gæti leitt til þess að mun fleiri og minni línur yrðu lagðar á umræddum svæðum, og valdið þannig mun meiri röskun á umhverfinu.

Úrskurður umhverfisráðherra er nú til skoðunar hjá Landsneti og segir Guðmundur í viðtalinu að hann virðist fyrst og fremst gera athugasemdir við vinnulag Skipulagsstofnunar en úrskurðurinn feli ekki í sér efnislega afstöðu til þeirra ákvarðana sem þegar hafi verið teknar.

Ekki verið að draga til baka álit á umhverfisáhrifum Suðvesturlína
Í viðtalinu bendir Guðmundur líka á að ákveðinn misskilningur ríki um málið. Ekki sé verið að draga til baka álit Skipulagsstofnunar á umhverfisáhrifum verkefnisins.„Það sem málið snýst um er að í upphafi þessa ferils var athugað hvort Suðvesturlínur og önnur verkefni ættu að fara í sameiginlegt umhverfismat. Í ákvörðun sinni færði Skipulagsstofnun margvísleg rök fyrir því að þess þyrfti ekki og það er þessi ákvörðun sem hefur verið felld úr gildi með úrskurði umhverfisráðherra. Þetta virðist einvörðungu gert vegna formgalla og hefur þá ekkert efnislega með umhverfismatið sjálft að gera. Vissulega mun úrskurðurinn framlengja óvissu í verkefninu. Ef niðurstaða málsins verður hins vegar sú að Suðurvesturlínur þurfi að fara í sameiginlegt mat með áformum um orkuöflun í Reykjanesfjallgarðinum mun það valda verulegum töfum á verkefninu. Við teljum hins vegar engin rök fyrir slíkri ákvörðun þar sem framkvæmdirnar við Suðvesturlínur eru að mjög litlu leyti háðar þessum áformum," segir Guðmundur í viðtalinu í Landi og sögu.

Í viðtalinu bendir Guðmundur líka á að verkefnið hafi dregist mjög á langinn vegna stjórnsýslunnar, þrátt fyrir að Landsnet hafi gert ráð fyrir ákveðnum sveigjanleika til að mæta töfum. Sá slaki sé nú uppurinn.

Viðtalið í heild má nálgast hér.

 

 

Nýjustu fréttir

Póstlisti Suðvesturlína

Fylgstu með framgangi verkefnisins með því að fá nýjustu fréttirnar í tölvupósti.



Landsnet