Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu í dag kemur fram að ráðuneytið telur líklegt að vegna álvers í Helguvík og annarra orkufrekra verkefna á Suðurnesjum þurfi að virkja frekar á Reykjanesi og jafnvel víðar. Hins vegar liggi ekki fyrir hversu langt áform um mögulegar virkjanir eru komin, m.a. varðandi suma þá virkjunarkosti sem til athugunar voru vegna álversins þegar mat á umhverfisáhrifum þeirrar framkvæmdar fór fram, og því hafi nokkur atriði tengd málinu ekki verið fyllilega skýr, eða nægjanlega upplýst, áður en Skipulagsstofnun tók ákvörðun í málinu.
„Stofnuninni [Skipulagsstofnun] bar að afla frekari upplýsinga til þess að hún gæti tekið nægjanlega upplýsta afstöðu til þess hvort skilyrðum fyrir sameiginlegu mati á umhverfisáhrifum væri fullnægt,“ segir í úrskurði ráðuneytisins. Að mati þess bar Skipulagsstofnun líka að leita samráðs við viðkomandi framkvæmdaraðila og leyfisveitendur um hvort sameiginlegt mat skyldi fara fram. Það hafi ekki verið gert og því hafi enginn umsagnaraðila vikið að þessu atriði í umsögnum sínum, utan þess að framkvæmdaraðilinn, Landsnet hf., hafi fjallað um þetta atriði í athugasemdum.
„Vegna þeirra annmarka á ákvörðun Skipulagsstofnunar að upplýsa málið ekki nægjanlega þykir rétt að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi og vísa málinu til stofnunarinnar á ný til efnislegrar meðferðar og úrlausnar. Tekið skal fram að með því hefur ráðuneytið enga efnislega afstöðu tekið til endanlegra lykta málsins,“ segir að lokum í úrskurði umhverfisráðherra.



Úrskurður umhverfisráðherra um Suðvesturlínur

Úrskurður umhverfisráðherra
