Skipulagsstofnun hefur fallist á mat á umhverfisáhrifum Suðvesturlína með skilyrðum. Í áliti stofnunarinnar sem gert var opinbert í dag er í meginatriðum tekið undir niðurstöður matsskýrslu Landsnets og einungis talin þörf á að setja frekari skilyrði um áflugshættu fugla á nokkrum stöðum á línuleiðinni.
Um er að ræða mjög umfangsmikla framkvæmd og nær áhrifasvæði hennar allt frá Hellisheiði og út á Reykjanesskaga. Fyrirhugað er að reisa 507 ný möstur og leggja milli 180 og 190 km af loftlínum og um 50 km af jarðstrengjum en á móti verða rifin 403 eldri möstur. Gert er ráð fyrir að framkvæmdunum verði skipt upp í fimm áfanga á árunum 2010 til 2017. Kostnaður við fyrstu fjóra áfangana er metinn um 27 milljarðar króna, á verðlagi í janúar 2009, en kostnaður við fimmta áfangann liggur ekki fyrir. Mannaflaþörf fyrir fyrstu fjóra áfangana er áætluð um 380 ársverk.
Helstu niðurstöður álits Skipulagsstofnunar
Skipulagsstofnun telur að neikvæðustu áhrif fyrirhugaðra framkvæmda verði sjónræn áhrif og áhrif á landslag og þar með einnig á útivist og ferðaþjónustu.
Skipulagsstofnun telur að heildaráhrif fyrirhugaðra framkvæmda m.t.t. þessara umhverfisþátta verði óhjákvæmilega verulega neikvæð. Þó að ljóst sé að það er jákvætt að tæplega 100 km af núverandi línum verða fjarlægðar þá eykst umfang raforkulína og mastra talsvert miðað við núverandi aðstæður þegar á heildina er litið.
Skipulagsstofnun telur að þegar litið er til heildaráhrifa fyrirhugaðra framkvæmda á jarðmyndanir og gróður verði áhrifin talsvert neikvæð þar sem nútímahraun munu raskast á óafturkræfan hátt á alls tæplega 30 ha landssvæði og nútímahraun eins og um er að ræða á áhrifasvæði framkvæmdanna, þekja lítinn hluta jarðar og sá gróður sem þar vex því frekar fátíður.
Skipulagsstofnun telur að nýlagning lína geti haft talsverð neikvæð áhrif á fugla á löngum köflum fyrirhugaðar línuleiðar vegna áflugshættu og búsvæðaröskunar, auk þess sem línuleið mun á kafla liggja í nálægð við gamlan varpstað hafarna. Á móti koma jákvæð áhrif vegna fyrirhugaðs niðurrifs núverandi lína um Heiðmerkursvæðið. Það er því niðurstaða Skipulagsstofnunar að heildaráhrif á fuglalíf verði nokkuð neikvæð vegna lagningar Suðvesturlína.
Skipulagsstofnun telur að við leyfisveitingar þurfi að setja eftirfarandi skilyrði:
Landsnet þarf að leggja fram áætlun um vöktun á áflugshættu fugla á raflínur við Fóelluvötn, Snorrastaðatjarnir og í nágrenni Reykjanesvirkjunar. Í áætluninni þarf að koma fram að ákvörðun verði tekin um merkingar línanna í ljósi niðurstaðna í samráði við Umhverfisstofnun.
Engar óvæntar niðurstöður
„Álit Skipulagsstofnunar er í heildina í samræmi við niðurstöðu matsskýrslu Landsnets og í því eru engar óvæntar niðurstöður," segir Ólafur Árnason, verkefnisstjóri umhverfismatsins. „Framkvæmdum sem þessum fylgja ávallt nokkrar breytingar á umhverfi sem geta haft bæði jákvæð og neikvæð áhrif í för með sér, á bæði náttúrufar og samfélag. Sjónræn áhrif eru vissulega mikil á nokkrum köflum leiðarinnar, eins og fram kemur í áliti Skipulagsstofnunar, en með umfangsmikilli samvinnu og samráði hefur samt tekist að draga verulega úr neikvæðum áhrifum, t.d. með því að ákveða að rífa eldri línumannvirki og nýta gömlu línuleiðirnar fyrir nýjar loftlínur. Jafnframt verður gripið til fjölmargra annarra aðgerða, bæði á framkvæmdastigi og að framkvæmdum loknum, til að draga enn frekar úr umhverfisáhrifum framkvæmdanna," segir Ólafur og undirstrikar að það hafi enda verið niðurstaða þeirra að umhverfisáhrif framkvæmdanna væru ásættanleg þegar á heildina væri litið og að teknu tilliti til ávinningsins af línulögninni.
Hægt er að nálgast álit Skipulagsstofnunar í heild sinni á vef stofnunarinnar og einnig hér á verkefnavefnum sudvesturlinur.is .



Álit Skipulagsstofnunar vegna Suðvesturlína


Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi