Suðvesturlínur

Velkomin á vef um uppbyggingu öflugs og öruggs flutningskerfis raforku á Suðvesturlandi - frá Hellisheiði að Geithálsi og Hafnafirði og áfram út á Reykjanes.

Hér verður leitast við að koma á framfæri upplýsingum um undirbúning og framvindu verkefnisins.

Sendið okkur línu; ábendingar, athugasemdir eða fyrirspurnir!

Forsíða Álit Skipulagsstofnunar væntanlegt 9. september

Álit Skipulagsstofnunar væntanlegt 9. september

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Nú hyllir undir verklok vegna mats á umhverfisáhrifum Suðvesturlína því endanleg matsskýrsla var send Skipulagsstofnun 10. ágúst síðastliðinn og er búist við áliti stofnunarinnar þann 9. september næstkomandi. Skipulagsferli stendur enn yfir í nokkrum sveitarfélögum og má búast við að þeirri vinnu ljúki að mestu á þessu ári.

Frummatsskýrsla fyrir Suðvesturlínur vegna mats á umhverfisáhrifum var lögð inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun 20. maí síðastliðinn. Í framhaldinu efndi Landsnet til opinna húsa um efni hennar en frestur til að koma athugasemdum og ábendingum á framfæri vegna frummatsskýrslunnar var til 2. júlí 2009. Alls bárust 25 umsagnir um frummatsskýrsluna og sjö athugasemdir. Í framhaldinu hófst vinna við lokafrágang matsskýrslunnar og var henni skilað inn til Skipulagsstofnunar 10. ágúst síðastliðinn, eins og fyrr segir.

„Við eigum von á því að álit Skipulagsstofnunar liggi fyrir í næsta mánuði, nánar til tekið þann 9. september," segir Ólafur Árnason, verkefnisstjóri umhverfismatsins hjá Landsneti. „Þá lýkur formlega mati á umhverfisáhrifum framkvæmdanna. Skipulagsferli eru hins vegar enn í gangi í nokkrum sveitarfélögum vegna breytinga sem gera þarf vegna fyrirhugaðra framkvæmda en ég á von á því að megninu af þeirri vinnu ljúki á þessu ári," segir Ólafur og bætir við að næstu skref í verkefninu snúi að því að huga frekar að hönnun mannvirkja, þegar niðurstaða Skipulagsstofnunar liggur fyrir, og vinna áfram að frekara samráði við leyfisveitendur og eftirlitsaðila.

Matsskýrslan (pdf)

Þjóðvegir rafmagnsins
Suðvesturlínuverkefnið, sem er stærsta einstaka verkefni sem Landsnet hefur ráðist í til þessa, var í brennidepli síðastliðinn laugardag þegar Landsnets stóð fyrir opnu húsi undir yfirskriftinni „Þjóvegir rafmagnsins" í tilefni menningarnætur Reykjavíkurborgar.

Um 800 gestir mættu í stjórnstöð Landsnets við Bústaðaveg og segir Brynja Dögg Ingólfsdóttir hjá Eflu verkfræðistofu, sem hefur umsjón með umhverfismati Suðvesturlína, að áhugi gestanna hafi verið mikill. „Fólk var almennt jákvætt í garð verkefnisins," segir Brynja. „Það var mikið að velta fyrir sér sýnileikanum, hvaða breytingar línulögnin myndi hafa á ásýn landsins og margir voru einnig áhugasamir um atvinnutækifærin sem myndu skapast, bæði við framkvæmdirnar, hönnun og undirbúning verkefnisins, í álverinu og tengdri starfsemi."

Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá opna húsinu á menningarnótt.

 

Þjóðvegir rafmagnsins Þjóðvegir rafmagnsins
thjodvegirrafmagnsins03 thjodvegirrafmagnsins04
thjodvegirrafmagnsins05 thjodvegirrafmagnsins06

 


 

 

 

Nýjustu fréttir

Póstlisti Suðvesturlína

Fylgstu með framgangi verkefnisins með því að fá nýjustu fréttirnar í tölvupósti.



Landsnet