Suðvesturlínur

Velkomin á vef um uppbyggingu öflugs og öruggs flutningskerfis raforku á Suðvesturlandi - frá Hellisheiði að Geithálsi og Hafnafirði og áfram út á Reykjanes.

Hér verður leitast við að koma á framfæri upplýsingum um undirbúning og framvindu verkefnisins.

Sendið okkur línu; ábendingar, athugasemdir eða fyrirspurnir!

Forsíða Opin hús og kynningarfundir vegna frummatsskýrslu Suðvesturlína

Opin hús og kynningarfundir vegna frummatsskýrslu Suðvesturlína

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Á sjöunda tug gesta mættu á opin hús sem Landsnet stóð fyrir til að kynna frummatsskýrslu Suðvesturlína í byrjun þessa mánaðar. Jafnframt hefur verið efnt til kynningarfunda með hagsmunaaðilum og vettvangsferðar en frestur til að gera athugasemdir við frummatsskýrsluna rennur út 2. júlí næstkomandi. Vonir standa til þess að hægt verði að skila endanlegri matsskýrslu til Skipulagsstofnunar um miðjan júlímánuð.

Efnt var til opinna húsa, til að kynna niðurstöður frummatsskýrslunnar, í Hafnarfirði, Kópavogi og í Reykjanesbæ dagana 5., 7. og 9. júní síðastliðinn og var mætingin sæmilega góð að sögn Ólafs Árnasonar, verkefnisstjóra umhverfismatsins hjá Landsneti. „Það mættu hátt í sjötíu manns á þessar þrjár kynningar, svona góður þverskurður af sveitarstjórnarfulltrúum, aðilum úr nefndum og ráðum sem veita umsögn, landeigendur og almenningur".

Mikið spurt um sjónræn áhrif

Mikið var spurt um sjónræn áhrif framkvæmdanna segir Ólafur en þeim efnisþáttum eru gerð góð skil, bæði í frummatsskýrslunni sem og hér á verkefnavefnum. Einnig voru gestir að velta fyrir sér þeim valkostum sem eru settir upp, s.s. í Hafnarfirði, áhrifum raf- og segulsviðs frá háspennulínum og fleiru. Þá létu landeigendur einnig til sín taka á fundunum, komu sínum sjónarmiðum á framfæri og leituðu upplýsinga um næstu skref í matsferlinu.

Frestur til að koma skriflegum athugasemdum og ábendingum til Skipulagsstofnunar vegna frummatsskýrslu Suðvesturlína er til 2. júlí 2009 en athugasemdir eru þegar farnar að berast að sögn Ólafs. Framundan er vinna við svara þeim athugasemdum sem hafa borist, og eiga eftir að berast.

sudvkynning_3_juni_09 sudvkynning_2_juni_09
Kynningarefnið er bæði á Netinu og á stórum kynningarplakötum.
sudvkynning_5_juni_09 sudvkynning_4_juni_09
Gestir og sérfræðingar Landsnets slá á létta strengi. Myndir: -arh

Matsskýrslan vonandi tilbúin um miðjan júlí

„Við gerum ráð fyrir að geta fullklárað matsskýrsluna fyrir miðjan júlí, ef allar umsagnir skila sér á réttum tíma," segir Ólafur og bætir við að þá hafi Skipulagsstofnun fjórar vikur til að skila áliti vegna umhverfismats Suðvesturlína. „Það má því búast við að það geti orðið um miðjan ágústmánuð, ef aðrar forsendur halda!"

Opnu húsin nýttust líka vel til kynningar á þeim skipulagsbreytingum sem eru í undirbúningi vegna línulagningarinnar hjá sveitarfélögunum 12 sem framkvæmdin snertir. Kópavogur, Garðabær, Mosfellsbær og Reykjavík eru að undirbúa  skipulagsbreytingar og eru þessi sveitarfélög ýmist búin eða að fara að auglýsa fyrirhugaðar skipulagsbreytingar. Gögn vegna skipulagsbreytinga í Vogum og Reykjanesbæ lágu líka frammi til kynningar á fundinum í Virkjun í Reykjanesbæ.

Vel heppnuð vettvangsferð

Samhliða opnu húsunum hafa verið haldnir kynningarfundir með umsagnaraðilum, fulltrúum sveitarfélaganna og fagstofnunum. Einnig var farin vettvangsferð um stóran hluta framkvæmdasvæðisins með fulltrúum Skipulagsstofnunar og Umhverfisstofnunar.

„Vettvangsferðin var að mínu mati mjög vel heppnuð og þar gafst fulltrúum þessara lykilstofnana mjög gott færi á að ræða á vettvangi við sérfræðinga Landsnets og aðra sem koma að gerð matsskýrslunnar til að fá sem bestar skýringar á tilteknum málum og málaflokkum," segir verkefnisstjóri umhverfismatsins.

 

 

Nýjustu fréttir

Póstlisti Suðvesturlína

Fylgstu með framgangi verkefnisins með því að fá nýjustu fréttirnar í tölvupósti.



Landsnet