Suðvesturlínur

Velkomin á vef um uppbyggingu öflugs og öruggs flutningskerfis raforku á Suðvesturlandi - frá Hellisheiði að Geithálsi og Hafnafirði og áfram út á Reykjanes.

Hér verður leitast við að koma á framfæri upplýsingum um undirbúning og framvindu verkefnisins.

Sendið okkur línu; ábendingar, athugasemdir eða fyrirspurnir!

Forsíða Opin hús til kynningar á frummatsskýrslunni

Opin hús til kynningar á frummatsskýrslunni

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
FrummatsskýrslaFrummatsskýrsla fyrir Suðvesturlínur vegna mats á umhverfisáhrifum var lög inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnun 20. maí síðastliðinn og á næstunni efnir Landsnet til kynningar á niðurstöðum hennar á opnu húsi.

Fyrsta opna húsið verður föstudaginn 5. júní í Haukahúsinu á Ásvöllum í Hafnarfirði, kl. 16-19, sunnudaginn 7. júní verður opið hús í Kríunesi við Elliðavatn kl. 14-17 og mánudaginn 8. júní verður opið hús í Virkjun á Ásbrú í Reykjanesbæ kl. 16-19.

 

Öllum er velkomið að mæta og kynna sér niðurstöður frummatsskýrslunnar og ræða við starfsmenn Landsnets og sérfræðinga sem unnu að matsvinnunni. Allir hafa rétt til gera athugasemdir við frummatsskýrsluna og koma þeim skriflega á framfæri við Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Gögn vegna breytinga á aðalskipulagi sveitarfélaga, sem verkefnið nær til, munu einnig liggja frammi til kynningar á þessum fundum.

Frummatsskýrslan er aðgengileg á vef Landsnets, www.landsnet.is, á vef EFLU verkfræðistofu, www.efla.is, og á heimasíðu verkefnisins, www.sudvesturlinur.is.

Skýrslan liggur einnig frammi til kynningar til 2. júlí 2009 á skrifstofum eftirtalinna sveitarfélaga: Sveitarfélagsins Ölfuss, Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar, Garðabæjar, Hafnarfjarðarbæjar, Kópavogsbæjar, Seltjarnarnesbæjar, Sveitarfélagsins Álftaness, Reykjanesbæjar, Grindavíkurbæjar, Sveitarfélagsins Voga og Sveitarfélagsins Garðs. Skýrslan er einnig aðgengileg á bæjarbókasafni Ölfuss, bókasafni Mosfellsbæjar, bókasafni Kópavogs, bókasafni Hafnarfjarðar og bókasafni Reykjanesbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun.

Smellið á nöfnin til að fá nánari upplýsingar um staðsetningu Kríuness við Elliðavatn og Virkjunar í Reykjanesbæ, Flugvallarbraut 740 á Vallarheiði.

 

 

Nýjustu fréttir

Póstlisti Suðvesturlína

Fylgstu með framgangi verkefnisins með því að fá nýjustu fréttirnar í tölvupósti.



Landsnet