Ætla má að um 100 manns hafi komið í opið hús í Reykjanesbæ, Vogum og Hafnarfirði um síðustu helgi til að kynna sér áform um Suðvesturlínur. Ólafur Árnason, verkefnisstjóri mats á umhverfisáhrifum, segir að nú hafi almenningur og umsagnaraðilar frest til föstudagsins kemur, 13. febrúar, til að koma athugasemdum sínum við tillögu að matsáætlun á framfæri við Skipulagsstofnun.
Hann gerir ráð fyrir að Skipulagsstofnun taki svo ákvörðun um matsáætlun fimmtudaginn 26. febrúar. Næsta skref í matsferlinu er svo að vinna að frummatsskýrslu en áætlað er að hún verði kynnt almenningi á komandi vori, í apríl og maí.
Ólafur er ánægður með opna húsið og segir gesti þar hafa verið áhugasama og upp til hópa jákvæða. Þeir hafi gefið sér góðan tíma til að fræðast og leita svara við spurningum hjá sérfræðingum á vegum Landsnets - sem hafi einmitt verið tilgangurinn með kynningunni! Einnig nýttu margir tækifærið til að koma ábendingum og sjónarmiðum sínum á framfæri, enda snerta framkvæmdirnar hagsmuni fjölmargra. Þar á meðal voru nokkrir landeigendur á svæðinu, sumir þeirra komu reyndar bæði í opið hús í Reykjanesbæ og í Vogum til að koma ábendingum og sjónarmiðum sínum á framfæri.
|
|
|
Aðstandendur opna hússins í Vogum stinga saman nefjum: Ólafur Árnason, Óskar Örn Gunnarsson, Jón Bergmundsson, Þórður Bogason og Ingólfur Eyfells.
|
Þrír útskýra og þrír þrjú hlusta í Vogum! Ólafur Árnason og Jón Bergmundsson til vinstri og lengst til hægri er Ingólfur Eyfells, allir á vegum Landsnets. Á milli þeirra standa þau Bergur Álfþórsson, Sveinborg Svansdóttir og Andri Þorsteinsson. |
|
|
| Yngsti gesturinn í opnu húsi í Vogum, Kristján Karl Frandsen, með móður sinni, Oktavíu Ragnarsdóttur, og Ólafi Árnasyni, verkefnisstjóra mats á umhverfisáhrifum Suðvesturlína. |
Opið hús í Hafnarfirði. Lengst til hægri er Sigurjón Páll Ísaksson hjá EFLU verkfræðistofu og einn af aðstandendum mats á umhverfisáhrifum Suðvesturlína. |
|
|
| Opið hús í Hafnarfirði. Ingólfur Eyfells kynnir verkefnið. |
Og hér er Brynja Dögg Ingólfsdóttir með áhugasama gesti í heimsókn í opnu húsi í Hafnarfirði. |
|
|
| Í Hafnarfirði: Sigurjón Páll Ísaksson, Ólafur Árnason og Jakob Gunnarsson, sérfræðingar á Skipulagsstofnun, sem leit inn í tilefni dagsins. |
Rýnt í kort í opnu (Hauka)húsi í Hafnarfirði. Svo vill til að út um gluggann í fjarska grillir í Hamranestengivirki við Hafnarfjörð. Vægi þess minnkar með þeirri endurnýjun sem boðuð er í dreifikerfi raforkunnar. |