Suðvesturlínur

Velkomin á vef um uppbyggingu öflugs og öruggs flutningskerfis raforku á Suðvesturlandi - frá Hellisheiði að Geithálsi og Hafnafirði og áfram út á Reykjanes.

Hér verður leitast við að koma á framfæri upplýsingum um undirbúning og framvindu verkefnisins.

Sendið okkur línu; ábendingar, athugasemdir eða fyrirspurnir!

Forsíða Vel heppnuð kynning í Reykjanesbæ

Vel heppnuð kynning í Reykjanesbæ

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

arni_kynning_keflavikÁ fimmta tug gesta sóttu opið hús Landsnets í Reykjanesbæ í gær þar sem kynnt var tillaga að matsáætlun vegna fyrirhugaðar styrkingar raforkukerfisins á Suðvesturlandi, allt frá Hellisheiði að Reykjanesvirkjun. Opið hús um tillöguna verður í Vogum á Vatnsleysuströnd í dag og Hafnarfirði á morgun.



Kynningin í Reykjanesbæ fór fram í Virkjun á Vallarsvæðinu og mætti dágóður hópur með bæjarstjórann, Árna Sigfússon, í broddi fylkingar, strax klukkan þrjú til að hlíða á útskýringar starfsmanna Landsnets og EFLU verkfræðistofu, sem verkstýrir matsvinnunni fyrir Landsnet.




Opna húsið stóð yfir í fjóra tíma og voru fyrirspurnirnar hinar fjölbreyttustu, að sögn Ólafs Árnasonar, verkefnisstjóra umhverfismatsins. Var m.a. spurt um fyrirhugaðan framkvæmdatíma verkefnisins, áfangaskiptingu þess, fyrirkomulag útboða og skiptingu þeirra, kostnaðarmál, línuleiðir, matsferlið sjálft og áherslur, bæði í umhverfismálum og matsáætluninni sjálfri.Margir voru einnig að velta fyrir sér sýnileika háspennulínanna og mastragerðum.




Næsta kynning á matstillögunni er í dag, laugardag, í Stóru Vogaskóla í Vogum, milli kl. 15 og 19 og á sama tíma í Hafnarfirði á morgun, sunnudaginn 8. febrúar, í Haukahúsinu að Ásvöllum.

 

Nýjustu fréttir

Póstlisti Suðvesturlína

Fylgstu með framgangi verkefnisins með því að fá nýjustu fréttirnar í tölvupósti.



Landsnet