Suðvesturlínur

Velkomin á vef um uppbyggingu öflugs og öruggs flutningskerfis raforku á Suðvesturlandi - frá Hellisheiði að Geithálsi og Hafnafirði og áfram út á Reykjanes.

Hér verður leitast við að koma á framfæri upplýsingum um undirbúning og framvindu verkefnisins.

Sendið okkur línu; ábendingar, athugasemdir eða fyrirspurnir!

Forsíða Tillaga að matsáætlun lögð fram

Tillaga að matsáætlun lögð fram

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út

Landsnet hefur lagt tillögu að matsáætlun fyrir Suðvesturlínur inn til málsmeðferðar hjá Skipulagsstofnunar skv. lögum um mat á umhverfisáhrifum. EFLA verkfræðistofa verkstýrir mati á umhverfisáhrifum fyrir hönd framkvæmdaraðila.

Öllum er boðað að kynna sér tillöguna, gera við hana athugasemdir og koma þeim skriflega á framfæri við Skipulagsstofnun fyrir 13. febrúar 2009. Hægt er að nálgast eintak af tillögu að matsáætlun ásamt viðaukum hér, sem og á heimasíðum Landsnets og EFLU Verkfræðistofu.

Landsnet kynnir tillöguna að matsáætlun á opnu húsi á þremur stöðum á næstunni:

  • Virkjun í Reykjanesbæ (Flugvallarbraut 740 á Vallarheiði) föstudaginn 6. febrúar  kl .15.00- 19.00.
  • Stóru-Vogaskóla í Vogum laugardaginn 7. febrúar kl. 15.00-19.00.
  •  Haukahúsinu í Hafnarfirði sunnudaginn 8. febrúar kl 15.00-19.00.
 

Nýjustu fréttir

Póstlisti Suðvesturlína

Fylgstu með framgangi verkefnisins með því að fá nýjustu fréttirnar í tölvupósti.



Landsnet