Suðvesturlínur

Velkomin á vef um uppbyggingu öflugs og öruggs flutningskerfis raforku á Suðvesturlandi - frá Hellisheiði að Geithálsi og Hafnafirði og áfram út á Reykjanes.

Hér verður leitast við að koma á framfæri upplýsingum um undirbúning og framvindu verkefnisins.

Sendið okkur línu; ábendingar, athugasemdir eða fyrirspurnir!

Forsíða Tillaga að matsáætlun til Skipulagsstofnunar um miðjan janúar

Tillaga að matsáætlun til Skipulagsstofnunar um miðjan janúar

Senda hlekk á þessa síðu til vinar Prenta út
Fundir voru haldnir með fjölmörgum hagsmunaðilum og leyfisveitendum. Hér eru fulltrúar heilbrigðiseftirlita á fundi með ráðgjöfum Landsnets.
Fundir voru haldnir með fjölmörgum hagsmunaðilum og leyfisveitendum. Hér eru fulltrúar heilbrigðiseftirlita á fundi með ráðgjöfum Landsnets.
Stefnt er að því að senda tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðrar endurbyggingar og eflingar raforkuflutningskerfisins á Suðvesturlandi til Skipulagsstofnunar um miðjan næsta mánuð en frestur til að gera athugasemdir við drög að matsáætlun verkefnisins rann út 16. desember síðastliðin
n.

Athugasemdir og ábendingar bárust frá fulltrúum landeigenda og sveitarfélögum og einnig hafa verið haldnir fundir með fulltrúum allra heilbrigðiseftirlita sem málinu tengjast, ferðamálasamtökum á svæðinu, Reykjanesfólkvangsnefnd, sem og Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun.

Næstu skref
Vinna við að yfirfara og svara þeim athugasemdum sem fram eru komnar er nú að hefjast og er gert ráð fyrir að tillaga að matsáætlun verði send Skipulagsstofnun um miðjan janúar 2009, ásamt athugasemdum og svörum við þeim.

Frá því að tillaga að matsáætlun hefur verið send Skipulagsstofnun hefur stofnunin fjórar vikur til að úrskurða hvort fallist er á matstillöguna. Á því tímabili gefst málsaðilum aftur tækifæri til að koma með athugasemdir og ábendingar og jafnframt verður efnt til ýmis konar kynningarfunda um tillöguna en nánar verður greint frá tímasetningu þeirra síðar.
 

Nýjustu fréttir

Póstlisti Suðvesturlína

Fylgstu með framgangi verkefnisins með því að fá nýjustu fréttirnar í tölvupósti.



Landsnet