Drög að matsáætlun vegna fyrirhugaðrar endurbyggingar og eflingar raforkuflutningskerfisins á Suðvesturlandi liggja nú frammi til kynningar á Netinu og gefst almenningi, hagsmunaaðilum og lögbundnum umsagnaraðilum nú tækifæri fram til 16. desember næstkomandi til að kynna sér framkvæmdina og koma með athugasemdir.
Kynning á tillögunni var auglýst í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu á þriðjudag, og einnig birtust auglýsingar í dag í Víkurfréttum, Fjarðarpóstinum, Suðurglugganum og Mosfellingi.
Þá hefur vel á annað hundrað landeigendum verið sendur sérstakur kynningarbæklingur sem búinn var til vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Bæklingurinn hefur einnig verið sendur forsvarsmönnum sveitarfélaganna 12 sem framkvæmdirnar snerta beint, ásamt drögum að matsáætluninni. Kynningarefni hefur einnig verið sent ýmsum samtökum, s.s. Ferðamálasamtökum Suðurnesja, Landvernd og Náttúruverndarsamtökum Íslands, og fundir eru fyrirhugaðir á næstu dögum með ýmsum hagsmunaðilum.
Drög að matsáætlun framkvæmdanna eru aðgengileg hér á vef verkefnisins, á vefsíðu Landsnets og EFLU verkfræðistofu næstu tvær vikurnar.



Tveggja vikna athugasemdafrestur



Fuglar og gróður á línuleiðum á Suðvesturlandi