Núverandi meirihluti sveitarstjórnar Voga hefur byggt afstöðu sína um að háspennulínur þær sem Landsnet hyggst reisa skuli leggja í jörð að stórum hluta á greinargerð Almennu verkfræðistofunnar (AV) sem gerð var í mars 2008, eins og meðal annars kemur fram í frétt RÚV í kvöldfréttum sjónvarps, 11. október sl. Landsnet mótmælti strax á þeim tíma forsendum sem lagðar voru til grundvallar landverði í skýrslu AV og hvernig það var nýtt með margföldunaráhrifum til að lækka kostnaðarmun á milli háspennulína í lofti annars vegar og hins vegar háspenntra jarðstrengja.





Landsnet sendi í morgun frá sér eftirfarandi yfirlýsingu í tilefni af fréttaflutningi vegna samþykktar meirihluta bæjarstjórnar Voga sl. miðvikudag, þess efnis að aðalskipulag sveitarfélagsins „verði tekið upp meðal annars með það að markmiði að breyta þeim hluta Suðurnesjalína sem liggur innan sveitarféalgsins úr loftlínum í jarðstreng".

Southwest lines